|
Vertu með ábyrgðina á hreinu!
Nýherji er umboðsaðili Canon á Íslandi og ber fyrirtækið eingöngu ábyrgð á þeim búnaði sem fyrirtækið flytur inn til landsins og viðurkenndir söluaðilar bjóða.
Í þeim tilfellum sem aðrir söluaðilar en viðurkenndir flytja sjálfir inn Canon vörur til Íslands ber Nýherji ekki tveggja ára ábyrgð auk þess sem ekki er tekin ábyrgð á vélum sem einstaklingar flytja sjálfir inn til landsins, t.d. frá Bandaríkjunum, eða versla á Netinu.
Canon myndavélar, prentarar, vídeóupptökuvélar og annar skyldur búnaður er með tveggja ára neytendaábyrgð og eins árs fyrirtækjaábyrgð.
Nýherji annast dreifingu á Canon fyrirtækjalausnum, sbr. laserprenturum, ljósritunarvélum, reiknivélum, plotterum, skjallaskönnum og faxtækjum.
Sense ehf, dótturfélag Nýherja, annast dreifingu á Canon neytendavörum, sbr. Ixus, PowerShot og EOS myndavélum, EF & EF-S linsum, vídeóvélum, PIXMA bleksprautuprenturum og skönnum ásamt blekhylkjum og ljósmyndapappír.
Verkstæði Skyggnis, Borgartúni 37, annast viðgerðir á Canon prentbúnaði en Beco, samtarfsaðili Nýherja og Sense, viðgerðir á Canon myndavélum, linsum og vídeóupptökuvélum.
Ef þig vantar upplýsingar um ofangreindar vörur, hugbúnað og stillingar á búnaði þá vinsamlegast hafðu samband við.
Canon fyrirtækjalausnir - Sími: 569 7700 / Netfang: soludeild@nyherji.is
Canon neytendavörur - Sími: 585 3800 / Netfang: canon@sense.is
|